|
|
14.04.2008 15:07:12 / elsa
Konur yfir fertugt - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld... Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar ástæður fyrir því: Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa?" Henni gæti ekki verið meira sama. Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn. Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum. Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær. Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar. Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar: Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum. Hvers vegna? Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pylsu! Andy Rooney
»
22.02.2008 19:27:25 / helena
Aaa.. ég fór inn á síðuna og halló hafnafjörður hvað allt er orðið breytt... fekk smá áfall og ætlaði að loka glugganum en sá svo að það stóð með stórum stöfum "Skrifa blogg" Svo ég ákvað að smella á það 
Annars er ég bara að blogga yfir seinasta blogg, þar sem fólk er farið að fá grænar bólur þegar það fer inn á þessa síðu.
Er líka að spá hvort ég ætti að hafa smá hitting heima hjá mér á morgun, eða fara í afmæli sem mér er boðið í og detta í það! Hvað finnst ykkur ?
»
22.01.2008 23:29:14 / íris
Heath Ledger einn af fallegustu mönnum jarðríkar fannst látinn í dag 22. jan... og allir vita nú hvað ég var hrifin af honum svo ég ætlaði bara að segja að það mun vera leiðinlegt að verður ekki hérna lengur! Hérna er frétt af msn.com NEW YORK - Heath Ledger was found dead Tuesday in a Manhattan apartment in what police sources are calling an apparent suicide or accidental overdose. He was 28. According to the New York Times, Ledger was found naked and unconscious with pills strewn all around him. Police sources told the Times that the death appeared to be a suicide or an accidental overdose. A source told msnbc.com's Courtney Hazlett that Ledger had been turning down roles lately.   Jæja ætlaði ekki að segja mikið meira bæjó í bili!!
»
14.01.2008 21:10:55 / helena
Sælar... ætla ða skrifa þetta bara strax, til að vera viss um að allar geti tekið þetta kvöld frá... fengið frí í vinnu eða bara sagt mér að hætta að hugsa um þetta...
Pælingin var að halda smá stelpuhitting, föstudaginn 25. janúar! Ég á að vera ein heima og var að pæla í að elda eitthvað gúmmulaði (í hollari kantinum samt) og kannski spila eða eitthvað gaman .... (Saumaklúbbur ungu kvennana) hehe
Hvað segiði ? Eruði lausar og til í að hittast þarna ?
»
07.01.2008 11:32:13 / steinunn
Eftirfarandi samtal átti sér stað í morgun: Ég er að hringja í Ingvar klukkan hálf 11 til að vekja hann, eins og hann bað mig um að gera. Eftir margar tilraunir til að hringja svarar hann loksins og er greinilega nývaknaður. Ingvar: “Halló?!!?” Steinunn: “Hæ elskan, ertu vaknaður?” Ingvar: “Ha? Hver er þetta?????” Er pínu reiður þarna. Ég er nú vön ýmsu þegar kemur að vekja Ingvar þannig að ég kippi mér ekkert upp við þetta.(nei hann hefur ekki lamið mig haha) Steinunn: finnst vera soldið augljóst að þetta er ég;“Þetta er jólasveinninn. Kominn til að segja þér að vakna”. Ingvar: “Ha!!!???? Bíddu, hvar fékkstu þetta númer??” Steinunn: “Nú, ég er jólasveinninn! Ég veit allt!!” Ég býst bara við að hann er að grínast með mér Ingvar: “Ég vil aldrei að þú hringir hérna aftur, er það skilið???!!!??” honum er soldið heitt í hamsi þarna. Steinunn: “Hey, ég er jólasveinnin! Ég má gera hvað sem ég vil.” Ingvar: “Já….hættu þessu!!!” Skellir á. Ég held á tólinu í smástund…og síðan átta ég mig á því að greyið hafði verið steinsofandi! Ég spring gjörsamlega úr hlátri, hringi aftur í Ingvar sem man ekkert eftir atvikinu, finnst ég vera frekar kjánaleg að segja svona fáranlega sögu  Jæja…þetta var ágætt svona í morgunsárið, en ég er núna að vinna upp í landhelgisgæslunni, síðasti dagurinn og svo bara stóra spurningin eftir! Þið sem vitið hver hún er þá skulum við bara bíða eftir morgundeginum til að sjá. Annars fór ég í þyrluflug um daginn og það var svoooo gaman ég tók náttla myndir sem koma síðar og síðan ætla ég líka að láta inn myndirnar úr gamlárspartýinu, sem eru sosem ekkert spes. Ég fór á Jesus Christ Superstar með múttu á laugardaginn og hitti ég ekki bara Írisi og Ævar þar líka! Annars fannst mér þetta ógóóó flottur söngleikur! Ég bara vááá! Allt flott! Það er samt ágætt að taka fram að með að segja að þetta er bara söngleikur, þá er þetta BARA söngleikur. Það er s.s. ekkert talað, bara sungið. Þannig að þið sem fílið ekki söngleiki…ekki fyrir ykkur!!!! Hvernig fannst þér, Íris? Hvað á svo að gera um helgina? Haha mánudagur og ég er strax farin að pæla í helginni P.s. Til hamingju með nýju vinnuna Helena
»
02.01.2008 00:50:32 / helena
Krúsídúllurnar mínar... nú er komið nýtt og betra ár! Ég set myndir úr áramótapartyinu sem ég tók á síðuna á morgun... ég tók alls ekki margar myndir þar sem myndavélin eyðilagðis soldið og var þá ekkert gaman við að taka þessar myndir :/
Steinunn, takk kærlega fyrir fínasta partý og guvuuuuuð hvað bollugosbrunurinn er flottur !  Verðum að nota hann aftur hehehe .... ansi margir sem gerðu það klúður að gleyma að setja sprite saman við en hvaaaaa fólk varð bara enn hressara við það 
Svo finnst mér að við ættum að hittast allar einu sinni í mánuði allar saman á þessu ári !  Svona saumaklúbbur... skiptist á hver heldur það.
Update:
»
16.12.2007 17:46:53 / Hoffa
Setti inn myndirnar úr afmælinu hennar Elsu Nennti ekki að skrifa undir þær, þið megið dunda ykkur í því ef þið viljið Takk fyrir gott partý Elsa  Ég er bara að njóta þess að vera í fríi núna! Kúra með hundinum mínum (Össi alltaf að vinna) og svo var ég að fá hestana mína! ÞAnnig að þar á ég heima í jólafríinu ef þið viljið hitta mig eitthvað heheh Bless í bili
»
25.11.2007 19:36:16 / Hoffa
Jæja stúlkukindur nú er að fjölga í hópnum okkar Ég og Össi erum formlega að fara að vera alvöru fjölskylda ! Mikil gleði og tilhlökkun ríkir á heimilinu !! Okkur fannst nú bara rétti tíminn núna að fá nýjan fjölskyldumeðlim, komin í okkar eigin íbúð og svona enda ég búin að bíða eftir þessu leeeeengi að eignast mitt eigið kríli Þurfti nú aðeins að sannfæra Össa en hann var nú fljótur að falla fyrir þessu þegar ég fór að sína honum myndir af öðrum litlum krílum, auðveldir þessi karlmenn haaaa  Litla krílið er nú 3 mánaða þannig að okkur fannst nú tímabært að fara að segja hinum frá og margir eflaust hissa á að ég skuli gera það hér á opnum vef eeeeen þegar maður er ungur og ástfanginn og allt að ganga upp á maður þá ekki að láta alla vita ? ég held nú það, íslenskukennari sagði nú að maður ætti að yrkja ljóð ef maður vildi láta allan heiminn vita hvað maður væri hamingjusamur, en hann er dálítið eftir á greyið! Bloggið er tekið við ljóðalistinni!!  Þannig að núna framvegis snýst allt um að fá einhvern til að passa áður en ég get farið út, og auðvitað smá drykkjupása En allt er það nú þess virði Og nú hafið þið ekkert um það að segja, hann mun fylgja mér útum allt ! Þetta er strákur og hann er bara YNDI ! Og þetta er ekki djók núna ! Viljiðið sjá myndir ? . . . . . . . . . . . . . . .  Þetta er hann Erró okkar !! Sætur ekki satt ? Það er eins gott að þið haldið handa honum veislu, fanga komu hans í hópinn, hann er jú eini strákurinn !!  Múhahahaha Hvernig lýst ykkur á sæta strákinn minn ? Hann er sko aaaalgjörlega búinn að bræða Össa, hann sem var nú ekki alveg á því að fá sér lítinn hund, en hann er sko í skýjunum með hann núna !! Enda er hann Erró algjör kúrikall  Kveðja, Hólmfríður og Erró sæti
»
22.11.2007 18:02:55 / helena
Sælar stúlkukindur... Ákvað að blogga yfir þetta hundleiðinlega Ísó-blogg.. þar sem Ísó er prump setjum X við Kópavog.. (og Breiðholtið fyrir þig Hoffa (hættu að vera útúr svo ég þurfi ekki alltaf að setja þig inn í sviga)). Allavega, þá er núna ofboðslega mikið að gera hjá okkur öllum.. og er aðeins ein ástæða fyrir því.. það eru að koma lokapróf!!! Næsta helgi er örugglega plönuð þannig hjá ykkur að þið verðið heima að kúra og læra til skiptis... en viljiði þá hugsa um mig, sem ætla að læra allan tíman því ég hef engan til að kúra með ( nema Elsu ) Hvernig fyndist ykkur að hittast heima hjá mér á laugardagskvöldið?.. bara spjalla, vídjógláp, spila, borða saman... what ever! Er nebblega home alone þá  Strákarnir mega alveg koma með sko... þeir mega líka koma með sæta stráka með sér haha  En hvað finnst ykkur ? Þetta þarf ekkert að vera planað.. ætla ekkert að vera að búa til svaka thing.. meira svona opið hús - þið bara hringið og segið.. "hææææ má ég koma og vera memm?" og þá segi ég annað hvort nei eða já.. fer eftir því hvort þú sért skemmtilegur eða ekki heh P.S. Ef þið vitið það núna að þið eruð pottþétt upptekin eða viljið pottþétt ekki hitta mig allavega.. endilega segið mér það  P.S.S. Ef að kærastan mín er að lesa þetta.. þá má hún auddað koma líka... Þú veist hver þú ert snúllan mín
»
13.11.2007 20:35:53 / steinunn
Hæ Hó allir saman! Já, ferðin stendur ennþá til, en málið núna er bara að redda sér þangað. Nemendafélagið mun ekki redda rútu þangað, en ég veit að einhverjir úr mk eru með rútu þangað á mjööööööög góðu verði . Einnig er bara besta mál að fólk fari sjálft, en hafið það í huga að ekki hvaða bílar sem er geta þolað þessa grófu Vesturlandsvegi þannig að það er mjög mikilvægt er að vera á góðum bílum.(þarf alls ekki að vera jeppi, en bara ekki alger drusla) Keppnin á Ísafirði byrjar klukkan 21:00 á föstudagskvöldið næstkomanda og keyrsla til Ísafjarðar tekur um 6 til 6 og hálfan klukkutíma (þetta eru alls um 534 km) og farið verður veturleiðin um Djúp og Strandir(vegaleiðin er greinilega merkt). Fyrir þá sem ætla á einkabílum, gott er þá að vera með leiðarhandbók meðferðis til að vera 100% viss Áætluð koma heim með rútunni, sem er ekki leigð á vegum nemendafélagsins, verður á laugardaginn. Varðandi gistingu, þá er gistiheimili á Ísafirði sem heitir Gistihúsið og þá verður að panta þar gistingu sjálf. Heimasíðan er www.gistihus.is og eru allar upplýsingar að finna þar. Ég veit um einhverja sem eru að fara sem eiga sumarbústað eða aðstöðu þar, þeir sem hafa áhuga á að deila því speisi mega kommenta hér að neðan Það sem þið þurfið að redda sjálf: - Ferð til og frá Ísafirði (einhverjir verða með rútu)
- Gisting
- Matur og drykkir.
- Alveg mega, geðveikan ógeðslega hressan stuðningsanda!
Athugið vel að þessi ferð er engan veginn á vegum nemendafélagsins. Fólk fer á sinni ábyrgð. Ef það eru einhverjar spurningar, endilega kommentið að neðan að vild. Áfram MK!!!!!!!!!!!
»
12.11.2007 09:02:50 / helena
Jæja, þetta er allra versti dagurinn til þessa. Þar sem það er nú 12 í dag og það var nú okkar dagur. En hva, ég ætlaði nú ekki að láta það á mig fá og reyndi að gleyma draumnum sem passaði svo vel fyrir þennan dag. Ég steig framúr 3 mín yfir 8, pissaði, klæddi mig og var komin út 10 mín yfir 8. Ákvað að fara í stærðfræði og brosa út í heiminn, nýta mér allan þennan tíma bara til þess að undirbúa mig betur fyrir stúdentsprófin. Þegar ég er komin í tíma, þá er ég ein... Kennarinn kemur upp, 5 mín eftir að það er búið að hringja, og segir að það hafi ekki átt að vera tími nema maður þurfi hjálp með eitthvað, vegna þess að það var skólaball í gær. Ég er því komin inní matsal, búin að fá mér rúnstykki og trópí.. og ætla í bubble struggle, því að þetta hefur verið ömulegur dagur.. og ég er samt bara búin að vera vakandi í klukkutíma! Ef þið vitið hvernig á að hressa mig við, endilega hjálpið mér! Því ég veit það ekki.
»
07.11.2007 20:33:15 / Hoffa
smá kjáwnahitting næstu helgi ... ?? Ég var að pæla að halda kannski smá sona "kaffiboð" eða þannig híhí ... bara þið komið og það verður smá snarl, kex, nammi og kannski kaka sem ég baka sjálf haha djók! Alls ekki búast við því  Allaveganna og þær sem vilja drekka mega það að sjálfsögðu, ég ætla hinsvegar að vera róleg en það getur vel verið að ég sötri smááá ! hehehe. annars ætla ég ekki að fara neitt, þúst niðrí bæ eða þannig... mikið að læra og þessháttar !!  Eeeeeen hvað segiðið um þetta ? Spjalla, jafnvel spila, samt ekki partý og co komin með nett ógeð af því Ég á tvö skemmtileg spil og svo er líka hægt að spila eitthvað skemmtilegt á 52 spil.... eða bara eitthvað fun !  Hittast svo um 9 leytið? Veit að þetta er kannski pínu stuttur fyrirvari en þær sem komast og vilja koma, koma bara en hinar sem komast ekki það er alltílagi! og ef engin kemst þá er það líka alltí lagi ég verð ekkert fúl úti í ykkur ! Bara smá hugmynd, hvað segið þið ? Kveðja, Hólmfríður !  
»
05.11.2007 20:45:27 / helena
Já sælar og blessaðar kjáwnarnir mínir! Þar sem ég sit núna og á að vera að læra, en er í staðinn að hugsa um að ég verði bara ekkert að læra eftir áramót og hvað ég yrði örugglega miklu minna með ykkur. Þá er sniðugt að við hefðum kjáwnahitting einu sinni í mánuði á næsta ári. Svona einskonar "saumaklúbbur", bara með öðruvísi sniði;
Hvernig finnst ykkur að hafa smá leik út úr þessu. Í hvert skipti sem við hittumst þá gerum við eitthvað nýtt og búum til smá keppni á milli okkar og það verða samtals 12 keppnir allt næsta ár og sú sem fær flest stig vinnur! Til dæmis væri hægt að hafa keilu, pool, veiðimann, spurningarkeppni, pictionary/actionary, Wii og bara endlaust mikið sem manni getur dottið í hug. (já steinunn, ég stal þessu frá UJK hugmyndinni minni ) Svo auðvitað höfum við glæsileg verðlaun fyrir vinningshafann! En þetta fengi okkur til að gera svo margt og þá einmitt kemur kannski smá keppnisskap í okkur og við gerum allt til að missa ekki af þessu kvöldi. Meina kommon, þetta yrði EINU SINNI í mánuði!! Hver hefur ekki tíma fyrir það?! (auðvitað ætla ég svo líka að hitta ykkur miklu oftar engar áhyggjur af því elskurnar mínar). Þetta brýtur bara upp hið hefðbundna form á kjáwnahittingnum okkar og væri gaman að prufa eitthvað nýtt. Svo ef þetta virkar vel þá gæti jafnvel verið að við höldum þessu áfram þangað til við verðum gamlar og gránar! Ég verð að fá komment frá öllum á þetta hvort þið mynduð nenna þessu eða ekki... ég er allavega orðin spennt og hlakka til að það komi janúar svo við getum byrjað !!!! Ykkar yndislegi kjáwni
Helena Sif
»
01.11.2007 09:09:12 / steinunn
Helena mín, af hverju hefur síðan þín ekki virkað í ógeðslega langan tíma? Eða er það bara ég?..... En já hvað segiði stelpur mínar, skemmtilegheit um helgina? Hverjir eru til?
»
28.10.2007 02:42:23 / helena
Nú er maður heldur betur pirr í pú! 
Dagurinn í dag var mjög góður, Lærði allt sem átti að
læra, slappaði af, tókum til í Naustabryggjunni, hann grillaði
rosalega rómó kvöldverð með kertaljósum og hvítvíni Um
kvöldið var legið í leti með tveim uppáhaldsfólkinu mínu (Valdi er
ekki í uppháldi akkurat núna) að horfa á tvið og í Wii og borðað
nammi 

Yndælis dagur.... þangað til...
klukkan var orðin hálf 1 og ég fer að ná í Valda minn í
partý og svo tengdó og vinkonu hennar. Þegar svona 5 mínútur voru
liðnar inní bílnum, var Valdi kominn með hausinn út og byrjaður að
æla á bílinn minn!!! Jæja... við komum heim
og allt kom fyrir ekki, hann byrjaði á því að æla á dekkið á bílnum
sínum sem var í bílastæðunum fyrir utan. Þegar við komum inn var
farið beint upp og haldið áfram í klóstið... svo komst hann upp í
rúm og var við það að sofna þegar hann stekkur upp,
ælir á gólfið inní svefnó, á ganginn og líka
baðherbergið ! Meðan hann var að losa sig við þetta
var ég orðin JANITOR að þrífa öll gólfin og veggina sem hann
var búinn að merkja sér !  En svo komst hann nú upp í rúm
og steinsofnaði þegar ég var búin að róa hann
niður....


En
auðvitað var ég orðin of pirr í pú til þess að fara að sofa, þannig
ég ákvað að skella einu bloggi upp...
ákvað að skrifa þetta á þessa síðu þar sem fleiri
fullorðin skildmenni mín lesa hina síðuna Og Valdi les aldrei
þessa síðu svo hann veit ekki að ég sé að tala um hann hérna
hahaha
Þetta kvöld lét mig ekki langa að drekka á næstunni... en
hva, hann MUN sko vera dræverinn minn næsta föstudag þegar ég
hrrrrrryyyyyyyyn í það! 
Bless í bili... passið ykkur á mér, ég
gæti spreyjað á ykkur ef þið hagið ykkur ekki 
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Fyrir 1085 dögum
|